Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 675. máls.
131. löggjafarþing 2004–2005.
Þskj. 1252  —  675. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um happdrætti.

Frá allsherjarnefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Rögnu Árnadóttur, Fanneyju Óskarsdóttur og Hjalta Zophoníasson frá dómsmálaráðuneyti, Magnús Snæbjörnsson frá Íslandsspilum, Pétur Bjarnason frá Happdrætti SÍBS, Brynjólf Sigurðsson frá Happdrætti Háskóla Íslands, Ellert B. Schram frá Íslenskri getspá, Bergsvein Sampsted frá Íslenskum getraunum og Íslenskri getspá, Sigurð Á. Sigurðsson frá Happdrætti DAS, Sigtrygg Jónsson frá Samtökum áhugafólks um aðgerðir gegn spilafíkn, Kristin Jón Björnsson frá Félagi heyrnarlausra, Guðrúnu Agnarsdóttur frá Krabbameinsfélagi Íslands, Guðlaugu B. Guðjónsdóttur frá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur, Emil Thoroddsen frá Gigtarfélagi Íslands, Þóru Þórarinsdóttur frá Styrktarfélagi vangefinna, Vilmund Gíslason frá Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra, Þorstein Sigurðsson frá Bandalagi íslenskra skáta, Guðnýju Guðnadóttur frá Húsnæðisfélagi SEM og Sigurjón Einarsson frá Blindrafélaginu. Umsagnir bárust um málið frá Happdrætti SÍBS, Slysavarnafélaginu Landsbjörg, Landssambandi björgunarsveita, Íslandsspilum (Íslenskum söfnunarkössum), Samtökum áhugafólks um aðgerðir gegn spilafíkn, Happdrætti Háskóla Íslands, Happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, Íslenskum getraunum, Íslenskri getspá sf. og Félagi heyrnarlausra. Þá barst sameiginleg umsögn frá Happdrætti Bandalags íslenskra skáta, Happdrætti Blindrafélagsins, Happdrætti Gigtarfélagsins, Happdrætti Húsnæðisfélags SEM, Happdrætti Krabbameinsfélagsins, Happdrætti Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, Happdrætti Styrktarfélags vangefinna og Sjálfsbjörg, landssambandi fatlaðra.
    Með frumvarpinu er lagt til að sett verði heildarlög um happdrætti. Lengi hefur verið rætt um endurskoðun núgildandi laga um happdrætti (lotterí) og hlutaveltur (tombólur), nr. 6/1926, og styrkingu lagagrundvallar happdrættisrekstrar. Eftirlitsstofnun EFTA hefur m.a. gagnrýnt það fyrirkomulag að hér skuli happdrættisstarfsemi bundin við íslensk fyrirtæki. Með frumvarpinu er komið til móts við þessar athugasemdir og í 3. gr. þess segir að leyfi til að reka happdrætti eða hlutaveltu megi einungis veita félagi, samtökum eða stofnun sem hefur staðfestu á Evrópska efnahagssvæðinu, að öðrum nánar tilgreindum skilyrðum uppfylltum. Ekki er þó hróflað við þeirri meginreglu að happdrættisstarfsemi sé háð leyfi dómsmálaráðuneytisins og áfram er gert ráð fyrir sérlögum um peningahappdrætti og vöruhappdrætti, svo sem lögum nr. 13/1973, um Happdrætti Háskóla Íslands, lögum nr. 16/1973, um Happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna, lögum nr. 18/1959, um Happdrætti fyrir Samband íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga, lögum nr. 59/1972, um getraunir, lögum nr. 26/1986, um talnagetraunir, og lögum nr. 73/1994, um söfnunarkassa.
    Nefndin leggur til nokkrar breytingar á frumvarpinu:
    Í 2. gr. sem fjallar um starfrækslu happdrætta segir að óheimilt sé að reka happdrætti nema með leyfi ráðherra eða öðruvísi sé mælt fyrir í lögunum. Nefndin telur rétt að mælt sé fyrir um í lögunum sjálfum hver sé tilgangur þeirrar meginreglu að banna happdrættisstarfsemi, en ráða má bæði af frumvarpsákvæðum og greinargerð með frumvarpinu að hann sé að halda uppi allsherjarreglu og hamla gegn skaðlegum áhrifum á almenning.
    Í 3. gr. er að finna ákvæði um leyfisveitingar til reksturs happdrættis og segir í 2. mgr. að leyfi fyrir happdrætti megi ekki veita sama aðila oftar en tvisvar sinnum á hverju almanaksári. Nefndin leggur hins vegar til að heimilt verði að veita sama aðila happdrættisleyfi allt að þrisvar sinnum á sama almanaksári. Þótt það hafi ekki komið fram hjá umsagnaraðilum að með því að takmarka leyfisveitingu við tvö skipti árlega taldi nefndin rétt að ráðherra hefði svigrúm til að veita þriðja leyfið þar sem þær aðstæður gætu komið upp að það gæti komið sér vel. Nefndin bendir jafnframt á að hér er um heimildarákvæði að ræða og leyfisveitingar fara eftir mati hverju sinni.
    Nefndin leggur til tvær breytingar á 5. gr. frumvarpsins. Annars vegar leggur nefndin til að ákvæði 1. mgr. um að happdrættisleyfi sé heimilt að binda því skilyrði að útgjöld til auglýsinga verði ekki umfram ákveðið mark verði fellt brott. Með hliðsjón af því að frumvarpið tekur einkum til smærri happdrættanna sem ekki verja miklu fé til auglýsinga telur nefndin óþarft að hafa ákvæði sem þetta í lögunum. Nefndin telur hins vegar eðlilegt að þetta verði aftur tekið til athugunar við endurskoðun sérlaga um peningahappdrætti sem boðað hefur verið að verði tekin til endurskoðunar næsta haust. Hins vegar leggur nefndin til að sölutímabil happdrættis megi að hámarki vera þrír mánuðir í stað tveggja mánaða áður. Á móti verður felld brott heimild til að framlengja sölutímann um einn mánuð ef sérstakar ástæður mæla með því. Þetta er gert með hagsmuni smærri happdrættanna í huga sem selja einkum miða með því að ganga í hús, en slíkt ferli getur tekið nokkurn tíma. Með breytingunni er því eytt óvissu um það hvort leyfi til sölu fyrir þriðja mánuðinn fáist. Þá bendir nefndin á að hjá umsagnaraðilum kom almennt fram að þriggja mánaða sölutímabil væri nægilega langt.
    Í 7. gr. frumvarpsins er ákvæði um að hlutfall verðmætis vinninga af heildarsöluverði útgefinna miða í hverjum einstökum happdrættisflokki skuli að lágmarki vera 35%. Athygli nefndarinnar var vakin á því að þessi breyting gæti haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir þá fjáröflun sem smærri happdrættin standa fyrir og jafnframt fyrir þá aðila sem vegna sérstöðu sinnar eru meira háðir auglýsingum um sína starfsemi en aðrir. Því telur nefndin rétt að þetta hlutfall verði lækkað niður í það sem tíðkast hefur til langs tíma, eða 16,67%.
    Nefndin áréttar að ákvæði 10. gr. frumvarpsins varðandi sérstakan kostnað sem stofnað er til vegna eftirlits er heimildarákvæði og ljóst að kostnaði við eftirlit verður ekki velt yfir á leyfishafa nema að gefnu tilefni.
    Þá leggur nefndin áherslu á að við endurskoðun sérlaga um peningahappdrætti sem boðuð er í greinargerð með frumvarpinu verði sérstaklega tekið til skoðunar hverjir skuli bera ábyrgð á fyrirbyggjandi aðgerðum gegn spilafíkn og hvernig þeirri ábyrgð verði háttað.
    Loks beinir nefndin því til dómsmálaráðuneytis að æskilegt sé að í reglugerð sem fyrirhugað er að sett verði samkvæmt lögunum verði það gert að skilyrði að vinningshlutfall í hverju happdrætti fyrir sig komi fram á öllum útgefnum miðum.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt með breytingum sem gerð er grein fyrir hér að framan og lagðar eru til í sérstöku þingskjali.
    Kolbrún Halldórsdóttir sat fundi nefndarinnar sem áheyrnarfulltrúi og er samþykk áliti þessu.

Alþingi, 28. apríl 2005.


Bjarni Benediktsson,


form., frsm.


Kjartan Ólafsson.


Guðrún Ögmundsdóttir.



Magnús Stefánsson.


Birgir Ármannsson.


Bryndís Hlöðversdóttir.



Sigurjón Þórðarson.


Sigurrós Þorgrímsdóttir.


Einar Karl Haraldsson.